Um
Sunnudagur, 25. október 2009 22:07

Ég er borinn og barnfæddur Reykvíkingur, rússneskur í aðra ættina; mamma verandi frá St. Pétursborg í Rússlandi.

Ég starfa við hugbúnaðarstýringu hjá Vodafone, þar sem ég hef starfað meirihluta fullorðinsáranna, þó ég hafi einnig starfað hjá bæði Glitni og Skýrr. Ég vinn aðallega með Oracle hugbúnað og gagnagrunna, WebMethods auk ýmissa sérhæfðra kerfa í fjarskiptaiðnaði.

Ég er áhugamaður um tölvur og tækni, tónlist, hagfræði, stjórnmál, íþróttir og fullt af öðrum hlutum.

Ég hef aðeins dundað mér við vefsíðugerð, og finnst það skemmtilegt svona til hliðar.

Ég er gallharður frjálshyggjumaður og meðlimur í Frjálshyggjufélaginu. Ég vantreysti almennt yfirvaldi og ríkisstjórnum, sérstaklega eftir "hrunið"

Ofaná allt annað er ég hrikalega skemmtilegur og töff!