| Búndes |
| Föstudagur, 30. október 2009 04:00 |
|
Þarna, í s.k. Sudtribune stúku hjá Borussia Dortmund verð ég, ásamt Tryggva vini mínum, eftir 3 vikur, á leikvangi sem tekur 80 þúsund manns, á leik sem [þegar þetta er skrifað] eru innan við 4000 miðar lausir á og fer fram í fjölmennasta landi Evrópu, hjá liði sem hefur orðið þýskur meistari 3x á síðustu 15 árum. Sudtribune stúkan er n.k. Kop stúka þýskalands, og stærsta frístandandi stúka Evrópu.
Fyrir þennan miða borgaði ég 26 evrur, og það bara á netinu í góðum fílíng í dag. Miði á völlinn hjá sambærilegu liði á Englandi (3x Englandsmeistari síðustu 15 ár), á sambærilegan leik (standard deildarleik) kostar á sama tíma frá 137 evrum, eða hátt í 6x meira en miðinn á völlinn í þýskalandi kostar. Þúveist, fokk enski, áfram þýski! Hver nennir þessu rugli.
|

Comments
Gylfi leggur annars til að þú fáir þér Borussia Dortmund treyju svo þú verðir nú ekki laminn þarna uppi í stúkunni.. hehehehe..
RSS feed for comments to this post.